Eldsins ógn: Skaftáreldar og móðuharðindin

Almenn rit

Eldsins ógn: Skaftáreldar og móðuharðindin

eftir Illugi Jökulsson

2026 · 360 bls.

Veldu snið

15.290 kr.

Til á lager

  • „Stórkostleg. … Mjög aðgengileg.“

    Rás 2 · Guðrún Dís Emilsdóttir

Um bókina

Skaftáreldar og móðuharðindin eru mestu náttúruhamfarir sem hér hafa orðið á sögulegum tíma. Og höfðu raunar svo víðtæk og skelfilega áhrif um víða veröld að umfang þeirra er enn að koma í ljós. Á Íslandi lentu þúsundir á vergang; straumar flóttafólks bárust vítt og breitt um landið, bústofninn féll unnvörpum og hungursneyð geisaði meðal landsmanna. Fimmti hluti þjóðarinnar dó á árum Skaftárelda og móðuharðinda enda brugðust yfirvöld við seint og illa.

Þessi ósköp hafa lengi verið rithöfundinum og fjölmiðlamanninum Illuga Jökulssyni hugleikin, og hér birtist sýn hans á hamfarirnar og skelfileg áhrif þeirra. Við söguna koma helstu fyrirmenn landsins auk útlendra lærdómsmanna og pótintáta af ýmsu tagi. Eldklerkurinn Jón Steingrímsson er að sjálfsögðu í forgrunni, en einnig sprettur hér íslenskt alþýðufólk ljóslifandi fram, svo sem Rögnvaldur halti, Látra-Björg, Bárður í Króktúni, Tófu-Gunna og mæðumaðurinn Ásmundur Jónsson, svo fáeinir séu nefndir. Útkoman er einstæð og áhrifamikil mynd af sögu þjóðar á sínum mestu örlagastundum.

Karfan þín

Valmynd