Grikklandsárið – með nútímastafsetningu

Skáldverk

Grikklandsárið – með nútímastafsetningu

eftir Halldór Laxness

2025

Veldu snið

2.990 kr.

Rafbók afhent strax eftir greiðslu

Um bókina

Grikklandsárið er sú seinasta af fjórum samstæðum minningasögum sem Halldór Laxness skrifaði á áttræðisaldri um æsku sína fram til tvítugs. Bókin kom upphaflega út árið 1980.

Eftir ársdvöl í útlöndum 1919–1920 snýr Halldór heim reynslunni ríkari en framtíðin er óráðin. Hann er aðeins átján ára en hefur þegar gefið út bók, á sér drauma um frægð og framandi lönd en bið verður á að hann komist aftur utan. Þess í stað stundar hann kaffihúsin Reykjavík og spjallar við spekinga milli þess sem hann situr við skriftir. Hér er þessu stefnulausa æskuskeiði lýst af hlýju og kaldhæðinni glettni hins roskna skálds.

Minningasögurnar fjórar eru: Í túninu heima, Sjömeistarasagan, Ungur eg var og Grikklandsárið.

Karfan þín

Valmynd