Hin myrku djúp – Vera 3

Skáldverk

Hin myrku djúp – Vera 3

eftir Ann Cleeves

2016 · 288 bls.

Veldu snið

3.390 kr.

Til á lager

Um bókina

Hin myrku djúp er fyrsta bókin um lögregluforingjann Veru Stanhope í Northumberland á Englandi, en bækurnar um hana njóta mikilla vinsælda víða um lönd, ekki síst eftir gerð velheppnaðra sjónvarpsþátta sem m.a. hafa verið sýndir hér á landi.

Þegar Julie Armstrong kemur heim til sín seint um kvöld eftir að hafa farið að skemmta sér finnur hún sér til skelfingar son sinn í baðkarinu þakinn blómum. Hann hafði verið kyrktur. Nokkru síðar finnst lík af ungri kennslukonu í grunnri tjörn og hafði blómum sömuleiðis verið sáldrað yfir líkama hennar.

Lögregluforinginn Vera Stanhope í Northumerland rannsakar málið. Morðin verða til þess að heimamenn taka að ljóstra upp sínum myrkustu leyndarmálum. Morðinginn fylgist með og bíður færis að undirbúa nýja vota blómagröf…

 

Karfan þín

Valmynd