Hlutafélagaréttur

Almenn rit

Hlutafélagaréttur

eftir Stefán Már Stefánsson

2025 · 578 bls.

Veldu snið

17.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Bókin fjallar um öll helstu álitamál hlutafélagaréttarins. Í henni er m.a. fjallað um stofnun, skráningu, hluti, breytingar á hlutafé félags og sjóði þess. Þá er fjallað um stjórnkerfi félaganna, endurskoðun og ársreikninga, samruna, félagsslit og mörg fleiri atriði. Um er að ræða endurskoðaða útgáfu ritsins Hlutafélagaréttur sem kom út árið 2013. Í þessari útgáfu eru gerðar umfangsmiklar breytingar frá fyrra riti.

Efnistökum bókarinnar er þannig háttað að hlutafélagarétturinn sjálfur, þ.e. kjarni hans, er í fyrirrúmi. þar er átt við stofnun og slit hlutafélags, skráningu, hluti og stjórnareiningar. Önnur skyld atriði á boð við endurskoðun, ársreikninga og lagareglur um fjármálafyrirtæki og skipulega verðbréfamarkaði eru einnig tekin til skoðunar en í styttra máli.

Höfundur bókarinnar er Stefán Már Stefánsson sem var árið 1979 skipaður prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Stefán á langan ritferil að baki á sviði lögfræði og hefur samið ýmis grundvallarrit á þeim vettvangi.

Karfan þín

Valmynd