Húsið: Hlýskeið

Skáldverk

Húsið: Hlýskeið

eftir Hjálmar Sveinsson

2026 · 200 bls.

Veldu snið

7.890 kr.

Til á lager

  • „Húsið er einstaklega vel skrifuð, nýstárleg og athyglisverð.“

    Lifðu núna · Steingerður Steinarsdóttir

Um bókina

Á mótum Baldursgötu og Óðinsgötu stendur lágreist, ílangt hús sem líkist helst bragga. Þakskegg og gluggar eru nánast sokkin í klæðninguna, svo oft hefur nýju lagi verið bætt við. En nú stendur til að færa ytra byrðið í upprunalegt form og byggja heila hæð ofan á húsið. Eigandinn er vakinn og sofinn yfir framkvæmdunum en fer einnig að grúska í sögu hússins og óhugnanlegum atburðum sem þar áttu sér stað rúmum fimmtíu árum áður.

Húsið – hlýskeið er margræð skáldævisaga um tímann, mannleg tengsl og þörfina fyrir öruggt skjól, hvort sem það er á heimilinu, í borginni eða meðal samferðafólks.

Hjálmar Sveinsson er menntaður í heimspeki, bókmenntum og þýskum fræðum. Hann sat í borgarstjórn Reykjavíkur og hefur ritað bækur um borgarskipulag og íslenska menningarsögu.

Karfan þín

Valmynd