Í hæfilegu magni

Ljóð og leikrit

Í hæfilegu magni

Heiða Vigdís Sigfúsdóttir

Veldu snið

4.890 kr.

Til á lager

  • „Ljóst er að höfundur er ekki eingöngu fær með tungumálið og takt orðanna, heldur er hún einnig afbragðsgóður sögumaður sem treystir lesanda til að lesa á milli línanna en matar hann ekki á meiningunni, en leiðir hann þó að djúpum og fallegum kjarna þar sem gott er að dvelja um stund og draga andann, njóta þess að vera maður sjálfur í þögninni á milli orðanna á síðunni, í rými sem var skapað fyrir alla þá sem eru kannski aðeins of mikið en samt aldrei nóg.“

    Lestrarklefinn · Sjöfn Asare

Um bókina

Kraftmikil ljóðabók um litríka uppreisn gegn þeim þrönga stakki sem samfélagið sníður konum. Bók sem er of hávær, of fjörug og fjallar um allt of stórar tilfinningar.

Í hæfilegu magni er fyrsta ljóðabók Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur (f. 1992) en hún bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjum röddum, árið 2022 með sögunni Getnaði. Saga hennar Stúlkan sem skemmdi (næstum því) jólin varð hlutskörpust í samkeppninni um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2021.

Karfan þín

Valmynd