Íslenskur aðall

Skáldverk

Íslenskur aðall

Þórbergur Þórðarson

Veldu snið

2.290 kr.

Til á lager

  • „Íslenskur aðall er ekki aðeins sjálfsævisaga heldur lýsing heillar kynslóðar.“

    Jón Yngvi Jóhannsson, Íslensk bókmenntasaga

Um bókina

Íslenskur aðall gerist sumarið 1912 þegar Þórbergur Þórðarson var rúmlega tvítugur og segir frá misheppnuðum tilraunum hans til að ná sambandi við „elskuna“ sína; stúlkuna sem hann þráir.

Sumarvinna hans hefst norður í Hrútafirði, skammt frá heimili hennar, svo heldur hann til Siglufjarðar og þaðan til Akureyrar í síld, snýr síðan til baka og endar á hinni frægu framhjágöngu. Í leiðinni kynnist hann hópi af lífsglöðum piltum sem flestir þrá að verða skáld og aðeins tímaspursmál hvenær þeir sigra heiminn.

Grátbrosleg ævintýri þeirra í frásögn Þórbergs hafa skemmt íslenskum lesendum í meira en sjötíu ár.

ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 11 klukkustundir og 25 mínútur að lengd. Höfundur les.

Hér má hlusta á brot úr fyrsta kafla hljóðbókarinnar:

Karfan þín

Valmynd