Um bókina
Mafíósarnir skokkuðu af stað í áttina til mín. Ég stóð frosin í sporunum og sá skyndilega eftir því að hafa ekki sleppt þessum bévítans jólaís. Ekki að ég hefði haft neitt val. Ég var harðákveðin í að halda svakalegustu jól allra tíma og þar var jólaísinn í lykilhlutverki.
Kæri lesandi.
Stuttu fyrir jól varð alvarlegt slys sem setti allt í uppnám. Skyndilega þurftum við Alex, litli bróðir minn, að verja jólunum hjá Geirþrúði, fjarskyldri frænku okkar í skuggalegu iðnaðarhverfi. Fljótt kom í ljós að Geirþrúður var vægast sagt hræðileg manneskja sem hataði bæði jól og börn. Þá gaf ég Alex loforð um að ég myndi halda rosalegustu jól allra tíma, þrátt fyrir að ég hefði enga hugmynd um hvernig ég ætlaði að gera það. Og þannig upphófst magnaðasta jólaævintýri lífs míns.
Kveðja, ZARA













