Kalt er annars blóð

Skáldverk

Kalt er annars blóð

Þórunn Valdimarsdóttir

Veldu snið

2.065 kr.

Til á lager

  • „Þórunn Valdimarsdóttir er ekki einhöm. Næst á eftir hinni miklu ævisögu Matthíasar Jochumssonar sálmaskálds og höfundar sjálfs þjóðsöngs Íslendinga gefur hún nú út krimma … en að sjálfsögðu er þetta engin venjuleg glæpasaga … Stíll bókarinnar í heild er óvenjulega fjölskrúðugur, orðmargur en reynir þó að ná hversdagsorðfæri og eðlilegri hrynjandi talmáls. Það er erfitt að segja hvort stíllinn hefur sín áhrif á það hvernig bókin kallar á virkan lestur, af því að sagan gerir það svo mjög sjálf, en eitt er víst: maður skemmtir sér.“

    Silja Aðalsteinsdóttir/tmm.is

Um bókina

Í Kalt er annars blóð er glæpasagnaformið fléttað glæsilega saman við íslenska sagnahefð og íslensk örlög í nútíð og fortíð eins og Þórunni Jörlu einni er lagið. Í kuldalegri Reykjavíkurborg flögrar krummi um og fylgist með viðburðum sem draga munu dilk á eftir sér; hann sér margt sem mannleg augu sjá ekki – peningar skipta um hendur, kettir eru keyrðir niður, hús brennd og menn skotnir eins og skepnur.

Þegar Ása finnur af tilviljun lík í malarhaugi norðan heiða ber margt fyrir augu sem áður hefur verið hulið – hvað rekur fólk til að ryðja öðrum úr vegi og hvað gerist þegar hömlurnar hverfa ein af annarri?

Kalt er annars blóð, sem sækir efnivið m.a. í Njálu, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2007.

Karfan þín

Valmynd