Kletturinn

Skáldverk

Kletturinn

Sverrir Norland

Veldu snið

3.890 kr.

Til á lager

  • „Við notum klettinn oft sem myndlíkingu yfir styrkleika sem við finnum í sambandi við annað fólk en við getum líka öll orðið steinrunnin að innan eins og hálfgerðir klettar sem eiga það til að hreinlega molna undan okkur. Sverrir segir hér einfalda sögu en fulla af margslungnum hugmyndum. Þarna er skrifað um vináttusambönd karlmanna samtímans, sér í lagi tveggja manna sem hafa burðast í tvo áratugi með skuggalegan atburð á bakinu sem mótaði þá báða en á ólíkan hátt. Þetta er saga um leyndarmál og hvort þau eigi stundum rétt á sér.“

    Bara bækur · Jóhannes Ólafsson

Um bókina

Kletturinn er spennandi skáldsaga um fyrirgefningu, metnað, siðferðileg álitamál og ekki síst tilfinningasambönd karlmanna. Hlýr tónn höfundar, óvenjuleg stílgáfa og vilji til að takast á við flóknar heimspekilegar spurningar heilluðu lesendur síðustu bókar hans, Stríðs og kliðs (2021), og gera Klettinn einnig að einstakri lestrarupplifun.

Tuttugu ár eru liðin frá því að Gúi hrapaði til bana í útilegu í Hvalfirði og síðan hafa félagar hans, Einar og Brynjar, þurft að vinna úr því áfalli, hvor á sinn hátt – en hvorugur með miklum árangri.

Nú liggja leiðir þeirra saman á ný og uppgjörið er óhjákvæmilegt. Hvað gerðist? Hvers vegna? Hvernig? Og hvern mann hafa þeir raunverulega að geyma?

Karfan þín

Valmynd