Köngurváfa

Ljóð og leikrit

Köngurváfa

Arndís Þórarinsdóttir

Veldu snið

4.890 kr.

Til á lager

  • „… eitt einkenni ljóða hennar er að þau eru mörg með sterkan frásagnarþátt, brugðið er upp knöppum og vel mótuðum stuttum sögum og markvissu myndmáli beitt.”

    Morgunblaðið · Einar Falur Ingólfsson

Um bókina

Köngurváfa er önnur ljóðabók Arndísar Þórarinsdóttur en þar tekst hún á við tilvistina með textum sem spretta úr upprunanum og horfa til framtíðar. Bókin spinnur þræði um formæður, fluguhnýtingar, ferðalög og stórtónleika heilmynda ABBA-flokksins, svo fátt eitt sé nefnt.

Fyrri ljóðabók Arndísar, Innræti, hlaut góðar viðtökur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2020. Arndís er jafnframt ötull barna- og ungmennabókahöfundur og hefur meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir verk sín, auk tilnefninga til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Þýsku barnabókaverðlaunanna og Minningarverðlauna Astridar Lindgren.

Karfan þín

Valmynd