Mannfræði fyrir byrjendur

Kennslubækur

Mannfræði fyrir byrjendur

eftir Gunnar Þór Jóhannesson og Þórður Kristinsson

2010 · 157 bls.

Veldu snið

5.390 kr.

Til á lager

Um bókina

Mannfræði fyrir byrjendur er grunnbók í mannfræði, hugsuð fyrir nemendur á framhaldsskóla- og háskólastigi en getur jafnframt nýst öllum sem hafa áhuga á faginu.

Í bókinni er fjallað um ýmsar greinar mannfræði og megináherslur kynntar. Leitast er við að gera grein fyrir grunnhugmyndum og hugtökum og tengja við nýlegar mannfræðirannsóknir, bæði hérlendis og erlendis.

Höfundar bókarinnar, Gunnar Þór Jóhannesson og Þórður Kristinsson, eru mannfræðingar sem hafa reynslu af rannsóknum og kennslu í mannfræði á framhaldsskóla- og háskólastigi.

Bókinni fylgir vefsvæði með hjálpargögnum. Upplýsingar um lykilorð fást í tölvupósti með því að senda skeyti á laufey@forlagid.is eða oddny@forlagid.is

Karfan þín

Valmynd