Milla

Skáldverk

Milla

Kristín Ómarsdóttir

4
Veldu snið

3.990 kr.

Til á lager

  • „Eins og alltaf í texta Kristínar Ómarsdóttur er einhver skratti í stílnum, sem kitlar hláturtaugarnar (og raunar ýmsar aðrar taugar í leiðinni) … Skemmtileg, frumleg og fagurlega skrifuð. Bætir, hressir og kætir.“

    Fréttablaðið · Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir

Um bókina

Milla er tuttugu og eins árs gömul og þráir að lifa eins og venjuleg stelpa – en hún veit ekki hvað hún á að gera við líf sitt og hefur á tilfinningunni að komandi sumar gæti orðið hennar síðasta. Þrjár vikur í maí skipta sköpum: ástin kemur og fer, Milla skrifar ömmu sinni ótal bréf en fær engin svör, hún skoðar vorkvöld í Reykjavík úr lofti með vini sínum og í vinnunni skrásetur hún gögn „Safnsins um hina venjulegu íslensku fjölskyldu í lok tuttugustu aldar“.

Milla er ævintýraleg Reykjavíkursaga, í senn létt og þung, glaðleg og sorgleg – Milla ræktar garðinn sinn en þar vex tré sem enginn annar sér …

Kristín Ómarsdóttir hefur skrifað skáldsögur, smásögur, leikrit og ljóð og hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir skrif sín, þar á meðal Fjöruverðlaunin, Menningarverðlaun DV og Grímuverðlaunin sem leikskáld ársins.

Milla hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2012.

Karfan þín

Valmynd