Móðurást: Lausnargjaldið

Skáldverk

Móðurást: Lausnargjaldið

eftir Kristín Ómarsdóttir

2026 · 322 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Rafbók afhent strax eftir greiðslu

  • „Móðurást – Lausnargjaldið er einfaldlega stórkostleg bók; hún feykir manni í hæstu hæðir, skemmtileg, vitur og sönn eltir hún mann daginn langan og kveikir sífellt nýja birtu. Takk Kristín; þú ert mega, mega.“

    Vigdís Grímsdóttir

Um bókina

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.  

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.

Karfan þín

Valmynd