Nornin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2019 | 330 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2019 | 330 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2020 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Alma Khan veit ekki af hverju henni, óbreyttum nítján ára starfsmanni í baunahúsinu á Hellisheiði, er boðið starf í einkagróðurhúsi hinnar heimsfrægu Olgu Ducaróvu. Helst dettur henni í hug að það tengist eitthvað Kríu ömmu hennar, sem þekkir Olgu eftir alræmdan leiðangur þeirra til Mars. Þegar Alma kynnist svo hinni leyndardómsfullu Indru umturnast lífið endanlega. Árið er 2096 og náttúran óútreiknanleg. Gamli miðbærinn er afgirtur og þar standa fúin hús í flæðarmálinu. Eitt þeirra á amma Ölmu og enginn skilur hvers vegna það er henni svona mikilvægt.
Nornin er framhald Ljónsins sem hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla ungmennabóka og hlotið mikið lof gagnrýnenda. Hún fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Vetrarhörkur, sem ásamt Vetrarfríi var tilnefnd sem ungmennabók ársins í Tékklandi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 42 mínútur að lengd. Höfundur les.
5 umsagnir um Nornin
gudnord –
„Fantavel skapaður framtíðarheimur með mögnuðum vísunum í samtímaheim lesenda. Skilur lesendur eftir með ótal forvitnilegar spurningar, bæði um söguna sjálfa og heiminn sem skóp hana.“
Ásgeir H. Ingólfsson / Stundin
gudnord –
„Með frumkvæðinu, hugmyndafluginu og framtíðarsýninni sem kemur fram í Norninni fer það ekki á milli mála að Hildur er meðal allra bestu ungmennabókahöfunda samtímans.“
Erla María Markúsdóttir / Morgunblaðið
gudnord –
„Mér finnst hún æðisleg!
Guðrún Baldvinsdóttir / Kiljan
gudnord –
„Þetta er feykilega spennandi og hvernig hún dregur upp þennan heim er frábærlega gert, fantavel gert.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
gudnord –
„Skemmtileg og spennandi bók sem veltir upp áhugaverðri en oft á tíðum óþægilegri framtíðarsýn.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið