Öxin og jörðin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2017 | - | Verð 990 kr. | ||
Mjúkspjalda | 2005 | 366 | Verð 990 kr. | ||
Hljóðbók | 2021 | App | Verð 1.490 kr. | Setja í körfu |
Öxin og jörðin
Verð frá 990 kr.

Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2017 | - | Verð 990 kr. | ||
Mjúkspjalda | 2005 | 366 | Verð 990 kr. | ||
Hljóðbók | 2021 | App | Verð 1.490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
„Öxin og jörðin geyma þá best.“ Þessi fleygu orð réðu í senn örlögum Hólafeðga og íslensku þjóðarinnar á sextándu öld. Einn kaldan nóvembermorgun var Jón Arason biskup hálshöggvinn ásamt sonum sínum tveimur, Birni og Ara. Með því grimmdarlega ofbeldisverki hvarf öll mótspyrna gegn hinum nýja lúterska sið og danska konungsvaldinu á Íslandi. Öxin og jörðin er söguleg skáldsaga um trú og efa, sjálfstæði og kúgun þar sem fjöldi einstaklinga stíga ljóslifandi fram úr þoku fortíðar. Ljós og skuggar koma fram á þeirri mynd sem lifað hefur með þjóðinni um píslarvættisdauða Jóns biskups Arasonar.
Í þessari áhrifamiklu sögu er brugðið birtu á veraldlega höfðingja eins og Erlend Þorvarðarson, lögmann, hinn kvensama Daða í Snóksdal og skörunginn Þórunni biskupsdóttur. Synir biskups þurfa að velja hvort þeir fylgi föður sínum, eigin sannfæringu eða leysi höfuð sitt. Öxin og jörðin er í senn saga þjóðar og grimmra örlaga. Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2003.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 13 klukkustundir og 47 mínútur að lengd. Hjörtur Jóhann Jónsson les.