Rósa og Björk: Hildur #2
Horfa á kynningu

Skáldverk

Rósa og Björk: Hildur #2

Satu Rämö

4
Veldu snið

4.290 kr.

Til á lager

  • „Rósa og Björk er eins og bestu glæpasögurnar; bæði grípandi og spennandi og nánast er hægt að lesa bókina í einni setu. Hildur endaði á mjög spennandi nótum varðandi hvarf systranna í fyrri bók og því var ég spennt að fá þessa bók í hendurnar þar sem titillinn gaf til kynna að loks kæmi niðurstaða í hvarfið. Ég var ekki svikin í þeim efnum og fannst sá hluti sögunnar sérstaklega spennandi og óvæntur. ”

    Lestrarklefinn · Sæunn Gísladóttir

Um bókina

Hvað varð um Rósu og Björk, yngri systur lögreglukonunnar Hildar, sem hurfu fyrir vestan árið 1994? Í öll þau ár sem liðin eru hefur ekkert til þeirra spurst en nú er Hildur loks komin á spor sem gæti leitt hana áleiðis að lausn gátunnar. Það þarf samt kjark til að horfast í augu við fortíðina …

Lögreglulífið á Ísafirði er líka allt annað en rólegt og lítill tími til að sinna öðru. Einn af máttarstólpum bæjarins, athafnamaður sem situr í sveitarstjórn, er skotinn til bana uppi í fjalli og Hildur og félagar eru ráðþrota. Hinn myrti var umdeildur, tókst á við pólitíska andstæðinga og einkalífið var skrautlegt svo að ýmsir gætu hafa viljað hann feigan. Og um götur Reykjavíkur reikar manneskja sem á harma að hefna.

Satu Rämö hefur slegið í gegn með bókunum um hina vestfirsku Hildi. Satu er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi. Glæpasögur hennar hafa selst í bílförmum í Finnlandi, Þýskalandi og víðar. Sú fyrsta, Hildur, varð metsölubók hér heima – Rósa og Björk er æsispennandi framhald.

Erla Elíasdóttir Völudóttir þýddi.

Kynning

Karfan þín

Valmynd