Síðasti spellvirkinn: Saga dansks andspyrnumanns

Rafbækur

Síðasti spellvirkinn: Saga dansks andspyrnumanns

eftir Anders Hauch Fenger

2026 · 292 bls.

Veldu snið

7.990 kr.

Til á lager

Um bókina

Árið 1940 hernámu Þjóðverjar Danmörku og nasistar héldu dönsku þjóðinni í heljargreipum næstu ár. Talið var að Danir hefðu gefist upp án mótspyrnu þar til öflug dönsk andspyrna kom upp á yfirborðið og breytti orðspori þjóðarinnar.

Ejler Borch (f. 1925) er einn þeirra sem tóku þátt í mótspyrnunni gegn Þjóðverjum. Hann gekk kornungur til liðs við samtökin BOPA sem unnu skemmdarverk á innviðum sem nýttust hernámsliðinu. Eftir stríð starfaði hann á ferju í heimabæ sínum og fáir þekktu til fortíðar hans sem vopnaðs andspyrnumanns. Fyrr en nú.

Í Síðasta spellvirkjanum fléttar blaðamaðurinn Anders Hauch Fenger sögu Ejlers saman við frásögn af dönsku andspyrnunni og Gestapó. Útkoman er nístingsspennandi og persónuleg frásögn af stríði, dirfsku og örlagaríkum ákvörðunum – byggð á viðtölum við Ejler og fjölskyldu hans og umfangsmikilli heimildavinnu.

Karfan þín

Valmynd