Stóri skjálfti

Skáldverk

Stóri skjálfti

Auður Jónsdóttir

4
Veldu snið

3.495 kr.

Til á lager

  • „Allt persónugalleríið er áhugavert og lifnar við á síðunum … Auður leikur sér listavel með þessar hugmyndir, um sjálfsmynd og veruleika, yfirborð og það sem undir leynist í samskiptum. Stóri skjálfti er áhrifarík og grípandi skáldsaga, hiklaust ein af bestu bókum ársins. Auður hefur fyrir löngu sýnt hve góður sögumaður hún er en hér eru tök hennar á stílnum sterkari en nokkru sinni, áreynslulaust og í fallegu flæði er skipt á milli hugsana og veruleika, fortíðar og nútíðar, þar sem undir liggja áhugaverðar og djúpar hugmyndir um hvað er að vera maður og lifa í samfélagi með öðrum. Lesandinn getur ekki annað en hrifist með.“

    Morgunblaðið · Einar Falur Ingólfsson

Um bókina

Blóðbragð í munninum. Blaut lærin nuddast saman, ég hef migið á mig í krampanum. Þetta er ekki að gerast. Hvar er hann? Verkurinn í enninu ágerist, eitthvað þrýstir á æðarnar, skall ég á höfuðið? Hljóp hann út í umferðina? Þá væri kominn sjúkrabíll. Eða hvað?

Saga rankar við sér eftir flogakast á gangstétt við Miklubrautina og þriggja ára sonur hennar er á bak og burt. Það síðasta sem hún man er tveggja hæða strætisvagn sem vegfarandi efast um að hún hafi í raun og veru séð. Næstu daga drottnar efinn yfir huga hennar. Hvað gerðist fyrir flogið? Hverju getur hún treyst? Og hvernig getur hún botnað nokkuð í tilfinningum sínum þegar minnið er svona gloppótt?

Skáldsögur Auðar Jónsdóttur hafa vakið athygli hér heima og erlendis fyrir fágæta blöndu af nístandi einlægni og húmor. Stóri skjálfti er áleitin og spennandi saga sem ber öll bestu einkenni höfundar síns.

Karfan þín

Valmynd