Um bókina
Bókin vekur athygli á því bókmenntahneyksli að í rúma öld lágu sögur Soffíu Tolstova, eginkonu Leó Tolstojs í þagnargildi.
Meginástæðan: Soffía var kona.
Svar hennar við umdeildri Kreutzer-sónötu Leós birtist hér í tveimur sögum, ásamt Kreutzer sónötunni sjálfri. Nóvellurnar þrjár kljást við ólík viðhorf til kynjanna og eiga sama erindi og fyrr.













