Tilbrigði í íslenskri setningagerð II

Almenn rit

Tilbrigði í íslenskri setningagerð II

eftir Ásgrímur Angantýsson, Einar Freyr Sigurðsson og Höskuldur Þráinsson

2015

Veldu snið

Um bókina

Bókin greinir frá niðurstöðum úr viðamiklu rannsóknarverkefni sem halut svonefndan Öndvegisstyrk frá rannsóknarsjóði (2005-2007).

Eins og nafnið bendir til var markmið verkefnisins að kanna útbreiðslu og eðli helstu tilbrigða í setningagerð íslensks máls og fá þannig glögga vitneskju um það hvert þróunin stefndi. Fjölmörg atriði voru rannsökuð og sem dæmi má nefna þessi: orðaröð, fall andlags og frumlags (þar með talin svokölluð þágufallssýki), þolmynd (meðal annars nýja þolmyndin) og notkun framsöguháttar og viðtengingarháttar.

Bókin er gefin út í þremur bindum. Fyrsta bindi fjallar um markmið verkefnisins, aðferðafræði og þann efnivið sem rannsóknin byggist á. Í öðru bindi er tölfræðilegt yfirlit yfir helstu niðurstöður en í þriðja bindi eru birtar sérransóknir á völdum tilbrigðum.

Höfundar eru málfræðingar og framhaldsnemar í málfræði við Háskóla Íslands og stofnanir tengdar honum.

Karfan þín

Valmynd