Einn af helstu hugsuðum heimsins

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Chang Ha-Joon

Borist hefur njósn af því að Ha-Joon Chang, höfundur bókarinnar 23 atriði um kapítalisma sem ekki er sagt frá, sé á lista Prospect Magazine yfir hugsuðu heimsins. Listinn mun birtast í maíhefti tímaritsins og aðdáendur Ha-Joons og bókar hans geta kosið hann með því að smella hér.  Ha-Joon Chang notar víðtæka þekkingu sína á efnahagssögu heimsins og skilning á því hvernig ólík efnahagskerfi virka um víða veröld til að benda á hugmyndir og leiðir til að gera samfélög betri og jöfnuðinn meiri. Þess vegna er gott að sjá hann á þessum lista.

Bókin 23 atriði um kapítalisma sem ekki er sagt frá kom út hjá Forlaginu í fyrra. Hún hefur nú verið seld til þrjátíu landa og höfundurinn er eftirsóttur víða um heim. Meðal annars er hann fyrirlesari við Háskólann í Cambridge, dálkahöfundur við Guardian og ráðgjafi Sameinuðu þjóðanna og ýmissa ríkisstjórna og stjórnmálaflokka.

Ha-Joon Chang fæddist árið 1963 í Suður-Kóreu. Hann er sérfræðingur í þróunarhagfræði og dósent í stjórnmálahagfræði þróunarlanda við Háskólann í Cambridge. Hann hefur ritað nokkrar bækur og fjölda greina um hagfræði, bæði fræðilegar og á léttari nótum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd