Mánasteinn hrífur vestanhafs

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sjon

Dagblaðið Financial Times fékk nýverið rithöfunda og greinahöfunda á blaðinu til að að velja bestu bækur ársins. Indónesíski rithöfundurinn Eka Kuniawan, fyrsti indónesíski höfundurinn sem tilnefndur var til Man Booker-verðlaunanna og höfundur bóka á borð við Man Tiger og Beauty is a Wound, valdi engan annan en Sjón og bók hans Moonstone: The Boy Who Never Was sem kom út ensku fyrr á þessu ári hjá forlaginu Sceptre. Bókin hefur hlotið gríðarlega góða dóma og stutt er síðan fjallað var ítarlega um útgáfuna og heildarverk Sjóns í þjóðmálaritinu The Nation.

Í rökstuðningi sínum sagði Kuniwan m.a. eftirfarandi: „Ég nýt þess alltaf að lesa bækur Sjóns en Mánasteinn er ólík öllum öðrum. Höfundurinn reynir á eigin mörk ásamt því að setja nýjan mælikvarða fyrir lesandann. Myndin sem hann dregur upp af Reykjavík árið 1918 er töfrum lík … Lestrarupplifun ársins.“

Sjón sendi nýverið frá sér nýja bók, Ég er sofandi hurð, þá þriðju og síðustu í þríleiknum sem hófst með verkinu Augu þín sáu þig. Bækurnar þrjár; Augu þín sáu mig, Með titrandi tár og Ég er sofandi hurð koma nú saman undir titlinum Codex 1962. Þann 1. desember var hlaut Ég er sofandi hurð tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd