„… að öllu leyti mjög vel heppnað verk”

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jón Yngvi Jóhannsson

Landnám, ævisaga Gunnars Gunnarssonar, eftir Jón Yngva Jóhannsson hefur fengið mikið lof gagnrýnenda. Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut nýlega Bókmenntaverðlaun bóksala sem önnur besta ævisaga ársins.

Fjallað var um bókina í síðasta þætti Kiljunnar og voru allir viðmælendur ánægðir með stórvirkið sem er upp á rúmlega 500 blaðsíður. Páll Baldvin fagnaði því að ævisaga Gunnars Gunnarssonar væri komin út enda „að öllu leyti mjög vel heppnað verk, vandlega unnið og fallega frá gengið.” Kolbrún var hrifin af því hvernig Jóni Yngva tekst að sýna alla bresti Gunnars; hégómagirni hans, sjálfhverfu og að geta ekki sett sig í spor annarra. Kolbrún sagði það „sjaldgæft að lesa íslenska ævisögu þar sem höfundur er ekki að dæma [Gunnar] en sýnir alla þessa miklu galla hans.” Einnig var hún hrifin af því að Jón Yngvi er óhræddur við að mótmæla túlkunum annarra fræðimanna á verkum Gunnars og kemur með ný sjónarmið.

Það eru fleiri en Kiljuliðar sem hafa heillast af verkinu. Skafti Þ. Halldórsson gaf bókinni fjóra og hálfa stjörnu í Morgunblaðinu á dögunum og segir bókina yfirgripsmikla og nærfærna. Einnig segir hann bókina unna af „vandvirkni og gagnrýnni hugsun og [veita] okkur góða innsýn í ævi Gunnars og höfundarverk.”

Glæsileg bók sem fjölmargir yrðu ánægðir með að fá í jólapakkann í ár.




Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd