Andri Snær fær tvenn verðlaun í Bandaríkjunum

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Andri Snær

Á föstudaginn langa var tilkynnt að Andri Snær Magnason fengi sérstök heiðursverðlaun Philip K. Dick-verðlaunanna fyrir bók sína Love Star sem framúrskarandi vísindaskáldsögu í kiljuútgáfu, en þetta eru einhver virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir vísindaskáldskap í heiminum. Vicky Cribb hefur fengið mikið lof fyrir enska þýðingu sína á bókinni og hefur henni verið líkt við verk Kurts Vonnegut og Douglas Adams.


Jafnframt hefur verið tilkynnt að Sagan af bláa hnettinum fái sérstök heiðursverðlaun Green Earth Book Award, en það eru verðlaun sem veitt eru framúrskarandi bókum sem vekja börn til vitundar um umhverfismál. Verðlaunin verða afhent í Salisbury í Maryland þann 5. apríl.


Þremur dögum síðar verður Sagan af bláa hnettinum frumsýnd á aðalsviði YPT-leikhússins, Young People’s Theatre, Toronto og verður sýnd á hverjum degi fram í byrjun maí. Þetta er í annað sinn sem verkið er sett á svið í Toronto en síðasta uppfærsla á því var tilnefnd sem sýning ársins í Toronto árið 2005.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd