Andri Snær hlýtur evrópsk menningarverðlaun

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Alfred Toepfer stofnunin í Hamborg hefur tilkynnt að Andri Snær Magnason fá Kairos verðlaunin árið 2010 en þau eru talin ein mikilvægustu menningarverðlaun Evrópu. Verðlaunaafhendingin fer fram í Hamborg þann 28. febrúar árið 2010 og nemur verðlaunaféð 75.000 evrum.

Toepfer stofnunin hefur um langt skeið veitt verðlaun á sviði menningar og lista í Evrópu en áður hafa listamenn eins og Harold Pinter, Pina Bausch, Imre Kertesz, David Hockney og Ólafur Elíasson verið meðal þeirra sem hafa hlotið verðlaun frá stofnuninni. Verðlaunin eru nefnd eftir gríska guðinum KAIROS sem var guð hinnar „réttu stundar“ og eru hugsuð sem viðurkenning fyrir framúrskarandi störf en þó ekki ævistarf – heldur eru þau hugsuð sem hvatning og stuðningur til frekari verka.

Kairos verðlaunin eru veitt einu sinni á ári og ætluð listamönnum á sviði  myndlistar, tónlistar, arkitektúrs, kvikmyndagerðar, ljósmyndunar, ritlistar eða blaðamennsku. Andri Snær hefur vakið athygli fyrir óvenju fjölbreyttan feril, frá ljóðlist, leikritun og skáldskap til verka sem taka á samfélagslegum málefnum og náttúruvernd. Dómnefndin byggði val sitt meðal annars á því að Andri Snær – sem höfundur stillir sér ekki upp sem hlutlaus áhorfandi heldur sem beinn þáttakandi í samfélaginu. Í fréttatilkynningu Alfred Toepfer stofnunarinnar segir meðal annars að: „með húmor og sannfæringarkrafti ljái hann kraftmikilli grasrótarhreyfingu á Íslandi rödd sína og sköpunarhæfileika“. Meira um Kairos verðlaunin, bakgrunn hennar, dómnefndarmenn og umsögn dómnefndar má lesa hér .

Andri Snær hlaut einnig „Verðlaun verðlaunanna“ á dögunum en upphefð sú er tengd vinsældarkosningu á bókum þeim sem hlotið hafa Íslensku bókmenntaverðlaunin síðustu 20 árin. Verðlaunin vann hann í öðru veldi því bók hans Draumalandið var valin í flokki rita almenns eðlis en Sagan af bláa hnettinum var valin í flokki fagurbókmennta.  Von er á nýrri prentun á Sögunni af bláa hnettinum en hún hefur verið uppseld um nokkra hríð.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd