Annað hefti TMM komið út

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
TMM 2 2019
TMM 2 2019

Annað hefti Tímarits Máls og menningar árins 2019 er helgað Bókmenntahátíð í Reykjavík sem stendur frá 24. til 27. apríl. Fjallað er um átta af erlendu gestunum í heftinu og birtar nýjar þýðingar á sögum eftir tvær skáldkonur sem sækja hátíðina heim, Lily King frá Bandaríkjunum og Samöntu Schweblin frá Argentínu. Kápumynd og teikningar af höfundunum átta eru eftir Helgu Páleyju.

Heftið er óvenju efnismikið og girnilegt að þessu sinni, auk erlendu smásagnanna geymir það íslensk og þýdd ljóð, meðal annars nýtt ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur. Davíð Hörgdal Stefánsson birtir seinni hluta greinar sinnar um tónskáldið Jóhann Jóhannsson og verk hans, Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í skáldsögur Vilborgar Davíðsdóttur um Auði djúpúðgu, Kari Grétudóttir greinir orðræðu um myndlist sem kölluð hefur verið „alþjóðleg lista-enska“ og Jón Karl Helgason varpar bráðskemmtilegu ljósi á klisjur kvikmyndaiðnaðarins um norræna víkinga.

Að venju teygir Guðmundur Andri Thorsson sig í skræðu úr bókaskápnum og fyrir valinu verða bréf séra Matthíasar Jochumssonar. Þá er í heftinu gullfalleg frásögn frá Stokkhólmi eftir Hjört Pálsson, umsagnir um sex nýjar bækur og fleira. Auður Jónsdóttir lýsir svo í hugvekju sinni þeim suðupotti sem Bókmenntahátíðin er og bregður upp eftirminnilegum myndum af fyrri hátíðum.

Tímarit Máls og menningar kemur út fjórum sinnum á ári. Áskrift kostar 7.000 kr. á ári en heftið fæst einnig í lausasölu í bókaverslunum. Ritstjórar eru Elín Edda Pálsdóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd