Arndís Þórarinsdóttir tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Arndís Þórarinsdóttir er tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023!

Rökstuðningur dómnefndar:

Fimleikastrákurinn Álfur er ótrúlega góður vinur, frábær sonur og besti stóri bróðir í heimi. Í fyrstu virðist fátt geta dregið Álf niður, ekki einu sinni þyngdaraflið þar sem hann sveiflar sér í fimleikahringjunum. En þegar foreldrar hans byrja að ræða það í tíma og ótíma að Eiki litli bróðir sé einhverfur koma brestir í veröld Álfs og hann tregar það þegar þau voru „bara venjuleg fjölskylda“.

Kollhnís er frumleg og áhrifarík saga um erfið málefni þar sem óáreiðanlegur sögumaður er í forgrunni og þröngt sjónarhorn hans teymir lesandann áfram á hnitmiðaðan og djarfan hátt. Eftir því sem líður á söguna fer lesandann að gruna að upplifun Álfs sé ekki fullkomlega traustsins verð. Agaður frásagnarmáti Arndísar og stíll dregur listilega fram, með kímni og kærleik, hvernig sterkar tilfinningar bjaga hrekklausa sýn sögumannsins á fólkið sem hann dáir.

Í huga Álfs er hann sá eini sem er með litla bróður sínum í liði, þar sem hann leggur sig allan fram við að kenna Eika að haga sér eins og venjulegur strákur, en mamma og pabbi hafa bara gefist upp. Hann stráir kökuskrauti yfir mat Eika til að fá hann til að borða, en í raun beitir Álfur sömu aðferð á eigið líf til að dylja óbragðið af því sem hann skilur ekki. „Ég hugsa um hvernig það hefði verið ef allir þar hefðu haldið að Eiki væri einhverfur. Þá hefði fólk horft á litla bróður minn og séð eitthvað allt annað en hann. Fólkið hefði séð fötlun. … Það hefði ekki séð Eika.“  Þótt Álfur sé aðeins barn sjálfur hefur hann tilhneigingu til að taka ábyrgð á þeim sem honum þykir vænt um. Sérstaklega litla bróður.

Frásögnin er manneskjuleg og skrifuð af dýpt og umhyggju fyrir meginumfjöllunarefninu: einhverfu og þeim flóknu áskorunum sem fylgja henni, bæði fyrir aðstandendur og einstaklinginn sjálfan. Kollhnís fjallar um marglaga og flókna fjölskyldudýnamík og tekur á sárum tilfinningum og meinsemdum sem þrífast í nándinni en ná sjaldan inn í íslenskar barnabókmenntir.

Afneitun Álfs á greiningu Eika myndar fjarlægð milli Álfs og foreldra hans sem eykst þegar hann tekur upp á því að heimsækja Hörpu, móðursystur sína og átrúnaðargoð í fimleikunum. Hún býr í næstu götu en foreldrarnir láta eins og hún sé ekki til. Álfur fer því leynt með samskiptin við Hörpu sem reynist eiga í fíknivanda og hann dregst inn í atburðarás sem er trúverðug en um leið ógnvekjandi.

Arndís fjallar af virðingu um áfallið sem einstaklingur upplifir þegar heimsmynd hans kollvarpast og hugmyndir hans um framtíðina þurfa að laga sig að því. Ljótum orðum og fordómafullum yfirlýsingum er gefið rými, sem vekur sannarlega upp tilfinningar hjá lesandanum, en gerir leiðina að sáttinni meira sannfærandi. Dregin er upp áhrifarík mynd af Álfi þar sem hann „gefst upp“  fyrir greiningunni rétt eins og foreldrarnir höfðu gert. Við fylgjumst með honum finna æðruleysi, í sínum eigin takti, til að horfast í augu við raunveruleikann og læra að meta sína venjulega óvenjulegu fjölskyldu.

 

Arndís Þórarinsdóttir (f. 1982) er rithöfundur og ljóðskáld sem hefur skrifað fjölda vinsælla barnabóka sem hlotið hafa ýmis verðlaun, auk tilnefninga til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Kollhnís hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka árið 2022.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd