Það er óðum að renna upp fyrir frændum okkar Dönum að Bankastræti núll er ekki póstfang Seðlabanka Íslands. Samnefnt ritgerðasafn Einars Más Guðmundssonar kom út þar í landi fyrir skemmstu og hefur þegar vakið eftirtekt. Í danskri þýðingu heitir verkið Bankstræde 0 og Erik Skyum-Nielsen þýðir.
Fjallað er um Bankstræde 0 í Berlingske og Information og ljúka ritdómarar beggja miðla lofsorði á ritgerðir Einars Más. Jørgen Johansen gefur bókinni fjórar stjörnur og segir m.a.:
„Heilög reiði er áberandi í ritgerðum [Einars Más] Guðmundssonar og það sama má segja um tiltrú hans á skáldskapnum sem vopni gegn innihaldsleysi og tómhyggju. Höfundurinn er bæði Skáld og Baráttujaxl með stórum staf. Nógu er að sinna fyrir þá báða á Íslandi nú um stundir.“
Og Andreas Harbsmeier skrifar í Information:
„Bókin sýnir ekki eingöngu að [Einar Már] Guðmundsson er afburðahöfundur heldur jafnframt glöggur samfélagsrýnir … menningarleg samviska sem tekur íslenska þjóðarsál til ástúðlegrar meðferðar með meðulum sjálfsgagnrýni og húmors.“





