Brakandi barnabækur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Nýjar íslenskar barnabækur streyma frá okkur þessa dagana og allir ættu að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Sumar eru fyndnar, sumar æsispennandi, sumar fróðlegar og lærdómsríkar, sumar allt þetta í senn – allar eru bækurnar grútskemmtilegar og eigulegar, hollt og gott lesefni handa börnum á ýmsum aldri.

Meðal nýútkominna íslenskra barnabóka okkar eru t.d. Náttúrugripasafnið eftir Sigrúnu Eldjárn, sem er sjálfstætt framhald Forngripasafnsins – báðar eru þær æsispennandi og skemmtilegar sögur eins og Sigrúnar er von og vandi, Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf, stórskemmtileg saga Gerðar Kristnýjar um forsetann og prinsessuna sem flest íslensk börn þekkja orðið, Víti í Vestmannaeyjum – hrikalega fyndin fótboltasaga fyrir alla boltastráka og boltastelpur, og hin fyndna og fjöruga Dagbók Ólafíu Arndísar, eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur. Ólöf Arndís sigraði landið og miðin með sögunni Flateyjarbréfin í fyrra  og þessi er ekki síðri.

Mikil umræða hefur spunnist síðustu vikur um mikilvægi þess að ungir lesendur hefðu viðeigandi lesefni og það er óumdeilt að sögustund foreldra og barna er gæðastund sem öll fjölskyldan nýtur góðs af. Og hér eru þær komnar … nú er ekkert annað en að sökkva sér í lestur, fjölskyldan saman eða hver og einn í sinni hosíló!


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd