„Dauðinn sem ég þekkti svo vel úr starfi mínu hafði vitjað mín. Nú stóðum við loks augliti til auglitis …“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Saga Pauls Kalanithi er af mörgum talin ein áhrifamesta lesning síðustu ára. Bók hans Andartak eilífðar (When Breath becomes Air) var valin meðal bóka ársins af Washington Post, The New York Times og NPR og er nú væntanleg í íslenskri þýðingu Ólafar Pétursdóttur.

Paul var aðeins þrjátíu og sex ára og að ljúka námi í taugaskurðlækningum þegar hann greindist með fjórða stigs lungnakrabbamein. Hann var farsæll læknir sem glímdi við banvæna sjúkdóma hjá skjólstæðingum sínum en var svo allt í einu settur í stöðu þeirra sjálfur.

Hvað gerir lífið þess virði að lifa því? Hvað gerir maður þegar fótunum er kippt undan tilverunni? Þessar og fleiri spurningar glímdi Kalanithi við í dauðastríði sínu og miðlar með einstökum hætti í þessari áhrifaríku bók.

Andartak eilífðar er ógleymanlegur vitnisburður um lífslöngunina andspænis dauðanum, og einlæg frásögn um samskipti læknis og skjólstæðings eftir mann sem var hvort tveggja.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd