Time kallaði hana ef til vill mikilvægustu bók ársins og franska dagblaðið Libération komst svo að orði að hún væri „grátbrosleg og ögrandi saga um viðkvæmustu en mikilvægustu mál samtímans.“
Bókin Undirgefni eftir Michel Houellebecq setti Frakkland algjörlega á hliðina þegar hún kom út í janúar í fyrra – sama dag og árásirnar á höfuðstöðvar Charlie Hebdo fóru fram. Viðbrögðin voru raunar svo ofsafengin að Houellebecq fékk lögreglufylgd. Gagnrýnendur eru þó flestir á sama máli, að hér sé um að ræða eina af bestu bókum höfundar þar sem hann tekst á við efni sem afar erfitt er ræða en ómögulegt að hunsa.
Í kosningunum vorið 2022 sigrar formaður Bræðralags múslíma, Múhameð Ben Abbes, frambjóðanda Þjóðfylkingarinnar, Marine le Pen, og verður þar með forseti Frakklands fyrstur múslíma. François er háskólakennari á fimmtugsaldri sem býr einn og lifir að mestu á tilbúnum réttum. Hann er sérfræðingur í nítjándu aldar höfundinum J.K. Huysmans og kennir við Sorbonne. Hann verður annaðhvort að laga sig að nýjum aðstæðum og gerast múslími – því nú lýtur allt lögmálum íslams – eða fara á rífleg eftirlaun. François er á báðum áttum og reynir að finna fótfestu í eigin hefðum en svo tekur líf hans óvænta stefnu.
Undirgefni sprettur beint upp úr samtímanum og spyr áleitinna spurninga um grunngildi vestrænna samfélaga á ólgutímum og viðbrögð fólks við gjörbreyttum aðstæðum.
Bókin vakti eins og áður sagði gríðarlega athygli og var á metsölulistum í Frakklandi vikum saman. Friðrik Rafnsson íslenskaði.





