Einstök bók í íslenskri bókmenntasögu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Skáldagan Snaran vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1968. Sagan er eintal – eða öllu heldur samtal þar sem rödd annars þátttakandans heyrist ekki – og er frásagnarformið einstakt í íslenskum bókmenntum.

Við erum stödd í óljósri framtíð. Stóriðja er helsti atvinnuvegurinn og erlent fjármagn og vinnuafl hefur flætt inn í landið. Nöpur ádeila sögunnar kemur ekki síst fram í mannlýsingu sögumannsins, sópara í verksmiðju, orðum hans, skoðunum og viðbrögðum. Hann segir sögu sína og þjóðarinnar, allt frá komu erlends herliðs á stríðsárunum og þeim þjóðfélagsbreytingum sem henni fylgdu og rekur hana allt til samtíma sögunnar. Er sá tími kannski runninn upp nú?

Jakobína Sigurðardóttur (1918 -1994) var fædd í Hælavík á Hornströndum en var lengst af ævinnar húsmóðir í Garði í Mývatnssveit. Hún var einn virtasti rithöfundur landsins og sendi frá sér skáldsögur, smásögur og ljóðabækur. Þrjár skáldsagna hennar, Dægurvísa, Snaran og Lifandi vatnið voru valdar sem framlag Íslands til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Snaran hefur verið ófáanleg um árabil en kemur nú í Klassíska kiljuklúbbnum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd