Nýjasta bók James Patterson, Feluleikur, sem hann skrifar í samstarfi við Michael Ledwidge fær fantafínan dóm í Morgunblaðinu. Patterson er gjörsamlega óstöðvandi í spennusagnaframleiðslu sinni en er langt frá því að vera útbrunninn. Hann heldur lesendum sínum algjörlega við efnið!
Í dómi Önnu Lilju Þórisdóttur í Morgunblaðinu er tekið undir þetta og sagt að „[Patterson] kunni svo sannarlega sitt fag sem er að skrifa hraðar, æsilegar og umfram allt skemmtilegar afþreyingarbækur … höfundar missa aldrei þráðinn, kankvís húmor í bland við átök og spennu …” og svo er sérstaklega tekið fram í dómnum hversu afbragðsgóð þýðing Magneu J. Matthíasdóttur sé á þessari krassandi spennusögu.
Þetta er á hreinu. Patterson klikkar ekki … og ekki Magnea heldur!





