„Það er bæði ástæðulaust og óþarft að fjölyrða um þessa bók og marklaust að fjalla um einstakar þýðingar hafi maður hvorki aðgang að ljóðunum á frumtungunni né kunni málið að gagni,“ skrifar Sigurður Hróarsson í fimm stjörnu dómi sínum ljóðasafnið Öll dagsins glóð í Fréttablaðinu um helgina. „Inngangur þýðandans [Guðbergs Bergssonar] og kynningar hans á einstökum skáldum eru fyrirtaks bókmenntafræði – fer þar saman afburðaþekking, dæmalaus stílþrif og málfimi, hugmyndaauðgi, áræði og vakning, og djörf efnistök sem eiga sér vart hliðstæðu (hér og nú) hvað varðar frumleika í túlkun og innsýn í eiginleika ljóðsins, eðlisþætti þess og formgerð.“ Enda skrifar Sigurður fullum fetum að hér sé komin frábær bók og sannkallaður kjörgripur sem ljóðaunnendur ættu að lesa í þaula.
Fimm stjörnu kjörgripur
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins




