Fimm stjörnu sumarhús

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Herman Koch

Nýlega kom bókin Sumarhús með sundlaug út eftir Herman Koch. Fyrri bók hans, Kvöldverðurinn, kom út á Íslandi árið 2010 og var vel tekið af bæði lesendum og gagnrýnendum. Sumarhús með sundlaug gefur Kvöldverðinum ekkert eftir hvað varðar hárbeittan og meinfyndinn stílinn, og hefur landað sínum fyrstu fimm íslensku stjörnum.

Páll Baldvin skrifar dóm um bókina í Fréttatímanum 29. júní. Hann gefur bókinni fullt hús stjarna, hrósar þýðingu Rögnu Sigurðardóttur, hæfni höfundar og tökum hans á umfjöllunarefninu. Hann segir að Koch sé „afhjúpandi höfundur … nöturlega fyndinn … [og kunna] að búa til spennu sem heldur lesanda á nálum.”

Páll Baldvin bendir á að Kvöldverðurinn og Sumarhúsið eiga það sameiginlegt að fjalla um evrópsku millistéttina, „siði hennar og siðgæði, hvað leynist undir fáguðu velferðaryfirborði nútímamannsins.” Einnig að „dirfska Koch fel[ist] ekki síst í að hann hikar ekki við að draga óþægileg efni fram í dagsljósið og veitir athygli djúpstæðu dýrslegu eðli tegundarinnar; karldýrsins í dýrum hörjakkafötum – kvendýrsins í stuttum kjól.”

Þess má geta að Sumarhús með sundlaug er tilnefnd til Librisbókmenntaverðlaunanna og Gouden Boekenuilverðlaunanna.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd