Forlagið flytur á Fiskislóð

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Bóka­út­gáf­an For­lagið flutti í síðustu viku all­an rekst­ur sinn í hús­næði á Fiskislóð 39. Þar hef­ur For­lagið rekið bóka­búð en nú fær­ist dag­leg­ur rekst­ur einnig þangað.

Sigþrúður Gunn­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins, seg­ir að ástæða flutn­ing­anna sé að geta nýtt bet­ur hús­næðið á Fiskislóð og að sam­eina starfs­manna­hóp­inn á ein­um stað.

„Við þurft­um ekki að stækka húsið á Fiskislóð held­ur ein­fald­lega nýta það bet­ur, þ.e. inn­rétta milli­loft sem áður var frum­stætt og lítið notað og gera aðrar breyt­ing­ar til að húsið henti til skrif­stofu­vinnu.

Um leið erum við að stækka búðina okk­ar, sem þýðir að stærsta bóka­búð lands­ins er að verða enn stærri. Sú vinna er í gangi og við hlökk­um til að bjóða fólk vel­komið í end­ur­bætta versl­un í sum­ar,“ seg­ir Sigþrúður enn frem­ur.

Með þess­um flutn­ing­um lýk­ur langri sögu bóka­út­gáfu við Bræðra­borg­ar­stíg. For­lagið hef­ur verið með starf­semi á tveim­ur hæðum við Bræðra­borga­stíg 7 en bóka­út­gáfa hef­ur raun­ar verið á Bræðra­borg­ar­stíg í hart­nær hálfa öld. Árið 1976 flutti bóka­út­gáf­an Iðunn á Bræðra­borg­ar­stíg 16 en Iðunn er nú hluti af For­laginu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd