Frábær frumraun

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sólveig Jónsdóttir

Í síðustu viku kom skáldsagan Korter út eftir Sólveigu Jónsdóttur. Bókin fjallar um fjórar konur sem eiga fátt sameiginlegt annað en að stunda Café Korter og vera á tímamótum í lífi sínu. Allar standa þær frammi fyrir breytingum í lífi sínu og fjallar bókin um það hvernig þær bregðat við þeim.

Bókin hefur nú þegar fengið glimrandi dóma. Blaðamaður Fréttatímans segir bókina slá Bridget Jones út enda séu persónur bókarinnar lausar við minnimáttarkenndina sem hrjáir Jones. Í bókadómi Fréttablaðsins segir Þórunn Hrefna Korter vera „ansi hreint skemmtileg bók og dýpri en flestar úr skvísugeiranum.” Í bókadómi DV er tekið undir það og sagt að „kaldhæðinn stíll Sólveigar [gefi] sögunni myrkt og töffaralegt yfirbragð.” Allir eru á sama máli að bókin sé frábær frumraun hjá Sólveigu, en Korter er fyrsta bók hennar.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd