Furðustrandir er mest keypta glæpasagan í Frakklandi!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Furðustrandir kápa frönsk

Glæpasagan Furðustrandir, eftir Arnald Indriðason, kom út í Frakklandi þann sjöunda febrúar síðastliðinn, í þýðingu Eric Boury. Bókin stökk beint í fyrsta sæti glæpasagnalistans og í þriðja sæti heildarlistans. Furðustrandir er því mest keypta glæpasagan í Frakklandi og þriðja mest keypta bókin þar í landi!

Höfundar á borð við Stieg Larsson, Henning Mankell og Jussi Adler-Olsen lúta í lægra haldi fyrir Arnaldi á listanum og ekki í fyrsta sinn því bækur Arnaldar hafa um árabil náð þeim einstæða árangri að landa fyrsta sætinu á listanum við útkomu. Þess má geta að önnur bók Arnaldar, Bettý, er einnig á topp- tíu-lista glæpasagnalistans.

Dómar um Furðurstrandir hafa verið á eina lund. Gagnrýnendur lofa bókina í hástert og fagna því að Erlendur hafi „snúið aftur“. Sabrina Champenois hjá Libération er gagntekin af sögunni og segir: „Þetta er snilldarverk, hreinn galdur. […] sjávardís í bókarformi sem heillar lesendur með segulmögnuðum tregasöng. ” Hið virta tímarit Télérama tekur undir þetta og segir: “Þetta er án efa fegursta bókin í röðinni um Erlend. Frá henni stafar dimmri og tregafullri ljóðrænu, en í lokin hillir líka undir flöktandi bjarmann af mögulegum friði.“

Í Furðuströndum er Erlendur á æskuslóðum sínum austanlands og fortíðin sækir á. Ekki aðeins atvik úr hans eigin lífi, heldur einnig önnur óleyst og óuppgerð mál.

Dagens Nyheter í Svíþjóð valdi Furðustrandir sem eina af bestu glæpasögunum sem út kom þar í landi árið 2012. Bókin var í fyrra ennfremur tilnefnd af Sænsku glæpasagnaakademíunni (Svenska Deckarakademin) sem besta erlenda glæpasaga ársins. Þá tilnefndi Crimezone hana sem bestu glæpasöguna í Hollandi árið 2012.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd