Garður Gerðar tilnefndur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Tilnefnt hefur verið í fimmta skipti til Barna- og unglingabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins en annað hvert ár eru þau veitt barna- eða unglingabók sem þykir bera af öðrum sambærilegum bókum sem gefnar hafa verið út í Færeyjum, Grænlandi eða Íslandi. Íslenska dómnefndin um Barna- og unglingabókaverðlaunin tilnefnir til verðlaunanna árið 2010 skáldsöguna Garðinn eftir Gerði Kristnýju sem kom út hjá Máli og menningu í fyrra.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars:

„Garðurinn er skrifuð af fágætri hind. Flétta sögunnar er áhugaverð og í mörgum hliðarsögum eru nútíð og fortíð tengdar saman og spurt um mörkin milli hins þekkta og óþekkta. Sagan er gædd ríku innsæi í sálarlíf unglinga auk þess sem Gerður Kristný blandar saman ólíkum bókmenntagreinum og nýtir sér eiginleika draugasögunnar, fantasíunnar, þroskasögunnar og sögulegu skáldsögunnar til að miðla fróðleik um hlutskipti fátæks fólks í Reykjavík á öðrum áratug tuttugustu aldarinnar. Í þessari bók tekst höfundinum fagurlega að sameina fræðslu, skemmtigildi og listrænt gildi.“

Grænlenska dómnefnd verðlaunanna hefur tilnefnt barnabókina Sila eftir Lana Hansen með teikningum eftir Georg Olsen. Dómnefnd Færeyja hefur tilnefnt bókina Várferðin til Brúnna eftir Rakel Helmsdal.  Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins verða veitt einni þessara bóka í ágúst 2010 og hlýtur verðlaunahafinn 60.000 danskar krónur eða um 1,4 milljónir íslenskra króna.

Verðlaunin eru veitt annað hvert. Valið fer þannig fram að í desember, árið áður en verðlaunin eru veitt, tilnefna dómnefndir landanna eina bók hver frá sínu landi. Vestnorræna dómnefndin velur síðan eina af þessum bókum sem svo hlýtur verðlaunin í ágúst árið eftir.

Árið 2002 hlaut bókin Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason verðlaunin, árið 2004 bókin Engill í vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur, árið 2006 hlaut færeyska bókin Hundurinn, kötturinn og músin eftir Bárð Oskarsson verðlaunin og í fyrra fékk Kristín Helga Gunnarsdóttir verðlaunin fyrir bókina Draugaslóð.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd