
Gerður Kristný hefur verið á ferð og flugi undanfarin ár og lesið upp úr verkum sínum, tekið þátt í pallborðsumræðum og haldið ræður um allan heim.
Vorið 2017 er hér engin undantekning á og það er nóg að gera hjá Gerði fram á sumar. Á sumardaginn fyrsta hélt hún hátíðarræðu um Jón Sigurðsson í Jónshúsi í Kaupmannahöfn en það var forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðsdóttir, sem fékk Gerði til verksins. Í maí heldur Gerður til New York til þess að taka þátt í bókmenntakvöldi í Skandinavia House vegna nýútkomins íslensks smásagnasafns en þetta er í þriðja skipti sem Skandinavia House býður Gerði á bókmenntaviðburð. Þaðan fer Gerður beint á alþjóðlegu Bok och hav-menningarhátíðina í Karlskrona í Svíþjóð.
Skáldsagan Hestvík hlaut afburðagóðar móttökur gagnrýnenda jafnt og lesenda þegar hún kom út fyrir jól. Í dómi Morgunblaðsins segir Ingveldur Geirsdóttir Hestvík vera „magnað verk“ og í dómi í Kiljunni sagði Kolbrún Bergþórsdóttir verkið vera „Ákaflega vel samið og vel skrifað … Gríðarlega vel heppnuð skáldsaga“.





