Okkur barst til eyrna, ofan af Höfðabakkanum, að prentun á stórvirkinu Vatninu væri að ljúka! Nú er prentun kápunnar að klárast og þar með prentun á síðustu „jólabókinni“ þetta árið. Hér á myndinni eru Leifur Björnsson og Blær Guðmundsdóttir sem hafa unnið svo ötullega að því að koma þessari gersemi Guðmundar Páls Ólafssonar í bók. Gripurinn kemur í verslanir eftir helgina, og bætist þá í safn Guðmundar sem áður gaf út Hálendið, Ströndina, Perlur og Fugla í náttúru Íslands.
Gleðifréttir!
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins





