Gourmand-verðlaunin: Nanna tilnefnd þriðja árið í röð

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Nanna Rögnvaldardóttir

Nýlega var tilkynnt um tilnefningar til Gourmand World Cookbook Awards. Tvær bækur frá Forlaginu hlutu náð dómnefndarinnar; Jólamatur Nönnu er tilnefnd í flokknum “Auðveldar uppskriftir” og Góður matur – gott líf í takt við árstíðir er tilnefnd í flokknum “Besta hönnunin” en sú bók var á dögunum einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Þetta er í þriðja árið í röð sem Nanna er tilnefnd til verðlaunanna. Árið 2009 var Nanna tilnefnd fyrir tvær bækur í þremur flokkum, það voru bækurnar Maturinn hennar Nönnu og Smáréttir Nönnu, og í fyrra var bókin Smáréttir Nönnu aftur tilnefnd.

Verðlaunin verða afhent í París á vordögum í tengslum við opnun á stærstu matreiðslubókasýningu sem haldin er í heiminum.

Gourmand World Cookbook Awards eru meðal þeirra virtustu á sviði matar- og vínbóka og hefur verið líkt við ólympíuleika kokkabókanna. Tilgangur þeirra er meðal annars að hjálpa lesendum að velja milli þeirra tugþúsunda titla sem koma út árlega um mat og vín og auka þekkingu og virðingu fyrir matar- og vínmenningu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd