Í tilefni af lestrarhátíðinni Ljóð í leiðinni verður fjölskylduuppákoma í aðalsafni Borgarbókasafnsins sunnudaginn 20. október þar sem nýrri útgáfu af hinni geysivinsælu ljóðabók Grannmeti og átvextir verður fagnað.
Dagskráin hefst kl. 14.30 þegar Ljótikór flytur með tilþrifum lög Hauks Tómassonar við nokkur ljóð úr bókinni. Kórinn mun einnig flytja lengra prógramm úr Grannmeti og átvöxtum á sérstökum tónleikum í Tjarnarbíói í lok október.
Að söngnum loknum á sunnudaginn efna Þórarinn og Sigrún til ljóða- og myndasmiðju þar sem krakkar fá, undir handleiðslu þessa hæfileikafólks, að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Þórarinn stjórnar ljóðasmiðju þar sem börnin fá að kynnast uppfinningu hans, Rímleitaranum. Sigrún stýrir myndasmiðju með klippimyndaþema og aðstoðar börnin við að búa til nýja átvexti sem verða hver öðrum furðulegri. Afurðir smiðjunnar verða síðan hengdar upp í Borgarbókasafninu, gestum og gangandi til gagns og gamans.
Miðað er við að þátttakendur í smiðjunum séu á aldrinum 4-12 ára en allir eru velkomnir. Laufléttar veitingar að hætti Grannmeti og átvaxta verða í boð fyrir þátttakendur.





