Grautur fyrir daginn – uppskrift frá Nönnu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Uppskrift að girnilegum hafragraut úr bók Nönnu Rögnvaldardóttur, Létt og litríkt.

Það þarf ekkert endilega að sjóða morgungrautinn, maður getur sett hafragrjón og vökva í krukku eða skál að kvöldi og það er tilbúið til neyslu að morgni. Óhætt er að láta hugmyndaflugið leika sér en hér eru fjórar tillögur. Í hverri uppskrift eru 125 ml af grófvölsuðum höfrum, sem mér þykja henta betur en fínvölsuð grjón, en vökvinn er mismunandi. Allar uppskriftirnar eru án viðbætts sykurs.

Hver skammtur er hugsaður fyrir einn.

1. Með berjum og möndlum

125 ml grófvölsuð hafragrjón
125 ml mjólk
1 msk möndlusmjör
2–3 msk blönduð ber (frosin)

2. Með sultu

125 ml grófvölsuð hafragrjón
150 ml hrein jógúrt
1 msk sykurlaus sulta

3. Með hnetum og ávöxtum

125 ml grófvölsuð hafragrjón
125 ml ávaxtaþykkni
(t.d. bananasmoothie)
1 msk salthnetur

4. Með vanillu og banana

125 ml grófvölsuð hafragrjón
150 ml kókosmjólk
½ banani, stappaður
½ tsk vanilluessens

Verði ykkur að góðu!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd