Guðbergur Bergsson verður heiðursdoktor

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Guðbergur Bergsson

Ráðstefna til heiðurs Guðbergi Bergssyni verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands 1. júní þar sem hann fær jafnframt heiðursdoktorsnafnbót. Blásið verður til málþings til heiðurs Guðbergi Bergssyni laugardaginn 1. júní í tilefni af stórafmæli skáldsins.

Málþingið, sem ber yfirskriftina Að heiman og heim, er haldið á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og er liður í Listahátíð í Reykjavík 2013. Í tilkynningu segir að þingið fari fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands og þar verður sjónum beint að verkum Guðbergs í alþjóðlegu samhengi og sækir glæsilegur hópur erlendra fræðimanna, rithöfunda og þýðenda Ísland heim til heiðurs skáldinu en einnig munu íslenskir fræðimenn og rithöfundar taka þátt í dagskránni. Meðal þess sem ber á góma eru þýðingar á verkum Guðbergs, fagurfræði hans og „leitin að landinu fagra“, samtal skáldskapar hans við verk yngri skálda og sá leiðangur sem list skáldsins hefur bæði tekist á hendur og fer með lesandann í.

Á málþinginu tekur Guðbergur jafnframt við heiðursdoktorsnafnbót við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Að þinginu standa Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Íslenskudeild Manitoba-háskóla, Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands, Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, Reykjavík – Bókmenntaborg UNESCO og Forlagið. Styrktaraðilar ráðstefnunnar eru Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið og Grindavíkurbær.

Viðburðurinn fer fram í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Þingið stendur frá kl. 09:45 til 16:30 og er öllum opið á meðan húsrúm leyfir en hægt er að nálgast frekari upplýsingar um það hér.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd