Þórdís og Tom, brotaþoli og gerandi, stíga fram í sameiningu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Þórdís og Tom

Rithöfundurinn, fyrirlesarinn og leikskáldið Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur skrifað nýja bók, Handan fyrirgefningar, með manninum sem nauðgaði henni á unglingsaldri, Tom Stranger. Undir lok síðasta árs héldu þau TED-fyrirlestur um efni bókarinnar þar sem þau, gerandi og brotaþoli, stigu fyrst fram í sameiningu.

Fyrirlesturinn má horfa á hér.

Þegar Þórdís Elva var 16 ára unglingur í Reykjavík var henni nauðgað af kærasta sínum, ástralska skiptinemanum Tom. Hún kærði aldrei ofbeldið sem hafði djúpstæð áhrif á alla hennar tilveru. Mörgum árum síðar skrifaði hún Tom og lýsti ofbeldinu sem hann beitti hana, í tilraun til að skila skömminni og rjúfa eigin þögn. Hún bjó sig undir neikvæð viðbrögð en fékk þess í stað skilyrðislausa játningu frá Tom, með ósk um að gera upp fortíðina í sameiningu. Eftir átta ára bréfaskipti ákváðu þau að mætast á miðri leið, í Suður-Afríku, landi sem á bæði sögu um átakanlegt ofbeldi og græðandi mátt fyrirgefningar.

Handan fyrirgefningar er áhrifarík og mögnuð saga af ferðalagi þvert yfir hnöttinn, frá ofbeldi til sátta. Hún er skrifuð í samvinnu geranda og brotaþola sem er algert einsdæmi í heiminum. Handan fyrirgefningar hefur vakið verðskuldaða athygli um heim allan sem sést e.t.v. best á því að bókin kemur samtímis út í Englandi, Svíþjóð, Þýskalandi og Ástralíu. Fleiri þýðingar eru væntanlegar, þ.á m. á japönsku og pólsku.

Þórdís segist hafa skrifað bókina einmitt vegna þess að henni er það kleift. „Ég var ekki grýtt, hýdd eða fangelsuð fyrir að hafa verið nauðgað,“ segir hún. „Ég var ekki neydd í hjónaband með gerandanum. Ég var ekki myrt til að endurheimta „heiður fjölskyldunnar“. Á vissan hátt má segja að stærsta áfall lífs míns sé jafnframt til marks um hversu mikilla forréttinda ég nýt, því ég get tjáð mig um það án þess að stofna öryggi mínu í hættu. En forréttindum fylgir ábyrgð og mér finnst ég skyldug til að beita rödd minni þegar svo margir brotaþolar um allan heim geta það ekki. En það er ekki nóg að brotaþolar tjái sig. Gerendur þurfa líka að rjúfa þögnina og axla ábyrgð.“

Tom tekur í sama streng: „Áframhaldandi þögn leiðir ekki til breytinga. Ég hef verið hluti af þessu vandamáli og nú langar mig að leggja mitt af mörkum til lausnarinnar. Tekið skal fram að ég er einn einstaklingur og alls ekki fulltrúi stærri hóps eða karlmanna í heild. Þetta er eingöngu mín saga, saga um hvítan millistéttarmann sem nauðgaði sextán ára kærustunni sinni þegar hann var sjálfur átján ára, og vill nú taka ábyrgð á sársaukanum sem hann hefur valdið í von um að það opni uppbyggilega umræðu.“

Forlagið er stolt af því að vera útgefendur þessa verks sem við teljum að geti breytt allri umræðu um þennan málaflokk.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd