Hildur, Linda og Margrét tilnefndar til Fjöruverðlaunanna

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Þrjár bækur frá Forlaginu eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna og kvára á Íslandi. Allar bækur eru í flokki barna- og ungmennabókmennta en hægt er að lesa umsagnir dómnefndar hér fyrir neðan.

Hrím eftir Hildi Knútsdóttur
„Hrím er fantasía sem gerist á kunnuglegu en þó framandi Íslandi og er saga um náttúruna, manneskjurnar, ástina og örlögin sem aldrei eru vís. Á hugvitsamlegan og næman hátt segir Hildur Knútsdóttir sögu Jófríðar, unglingsstúlku sem tekst á við áskoranir unglingsáranna ásamt því að þurfa að axla óbærilega þunga ábyrgð þegar framtíð fólksins hennar hvílir skyndilega á henni. Hrím er hörkuspennandi og stundum ógnvekjandi skáldsaga sem ómögulegt er að leggja frá sér.“

Ég þori! Ég get! Ég vil! eftir Lindu Ólafsdóttur
„Barátta íslenskra kvenna fyrir auknu jafnrétti hefur ratað á bók sem ætluð er börnum, Ég þori! Ég get! Ég vil! Höfundur mynda og texta er Linda Ólafsdóttir. Sagan er sögð með heillandi og merkingarþrungnum myndum og texta þar sem móðir rifjar upp og dóttir spyr spurninga. Frásögn af kvennafrídeginum 1975 kallast á við 24. október þessa árs og sýnir að enn þarf að berjast. Fallegt verk með skemmtilegum myndum og stuttum, hnitmiðuðum texta sem bæði uppfræðir og skemmtir.“

Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina eftir Margréti Tryggvadóttur
„Í bókinni Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina fjallar Margrét Tryggvadóttir um listafólkið sem lagði grunn að íslenskri listasögu. Að auki greinir hún í stuttu máli frá ýmsum aðferðum sem notaðar eru við listsköpun. Bókin er einstaklega vel unnin, umbrotið vandað, myndirnar vel valdar og textinn á fallegu máli. Hér er á ferðinni sannkallað listaverk sem er um leið mjög fróðlegt og vekur áhuga á listum.“

Við óskum Hildi, Lindu og Margréti innilega til hamingju með tilnefningarnar!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd