Hreinskilin og þörf bók um börn og alvarleg veikindi

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Þegar foreldri fær krabbamein

Í bókinni Þegar foreldri fær krabbamein er fjallað á hreinskilinn og nærfærinn hátt um það krefjandi verkefni að ala upp börn og lifa og gefandi fjölskyldulífi þegar foreldri glímir við krabbamein. Bókinni er ætlað að auðvelda foreldrum og aðstandendum að ræða við börn um erfið veikindi og takast á við það sem þeim fylgir.

Barnabókin Begga og áhyggjubollinn fylgir með fræðslubókinni en það er myndskreytt saga um sjö ára stúlku sem á móður með krabbamein. Sagan er sögð út frá sjónarhorni barnsins og er ætluð til lestrar með eða fyrir börn í samræmi við aldur þeirra og þroska.

Bækurnar tvær eru skrifaðar af Wendy S. Harpham, lækni og þriggja barna móður, sem glímdi við krabbamein um nokkurra ára skeið.

Þegar foreldri fær krabbamein er gefin út í samstarfi við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Félagar í Krafti eru 520. Félagið var stofnað árið 1999 og verður því 15 ára á þessu ári. Formaður Krafts er Halldóra Víðisdóttir.

Sálfræðingarnir Anna Sigríður Jökulsdóttir og Guðrún Oddsdóttir lásu textann og Guðlaug B. Guðjónsdóttir, hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, veitti einnig ráðgjöf. Styrktaraðili bókarinnar er fyrirtækið Gengur vel ehf.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar efna Kraftur og Forlagið til útgáfuhófs í salarkynnum Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð, þriðjudaginn 27. maí kl. 17. Anna Sigríður Jökulsdóttir, sálfræðingur Krafts, flytur erindi um efni bókarinnar og mikilvægi þess og foreldri sem hefur reynslu af krabbameini kemur fram. Boðið verður upp á léttar veitingar og allir velkomnir.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd