Hungurleikarnir fá góða dóma

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Hungurleikarnir

Hungurleikarnir er fyrsta bók í þríleik en bækurnar hafa notið gríðarlegra vinsælda undangengin ár. Fyrsta bókin kom út á íslensku fyrir jólin og hefur hún fengið frábæra dóma hjá íslenskum bókarýnum. Bókin er skrifuð fyrir unglinga en eins og Kristjana á DV tekur fram í sínum dómi þá á hún fullt erindi til fullorðinna líka. Í dómi sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum fær bókin fjórar stjörnur og segir Una Sighvatsdóttir sem skrifar dóminn bókina hafa „allt sem þarf til að krækja lesandann fastan: Söguheimurinn er forvitnilegur, atburðarásin spennandi og manni fer fljótt að þykja vænt um aðalpersónurnar.”

Sagan gerist í framtíðinni og fjallar í stuttu máli um Hungurleika sem haldnir eru á hverju ári í ríkinu Panem og hvert umdæmi í ríkinu sendir einn strák og eina stelpu til að taka þátt.  Keppnin er sýnd í beinni útsendingu um allt land og reglurnar eru einfaldar – sá sigrar sem heldur lífi. Fylgst er sérstaklega með keppendunum sem koma úr tólfta umdæmi og hvernig þau reyna að leika leikinn á nýjan máta til að halda lífi.

Kvikmynd gerð eftir fyrstu sögunni er væntanleg í kvikmyndahús í vor og bíða margir aðdáendur bókanna eftir henni með óþreyju. Hér má sjá sýnishorn úr myndinni og nánari upplýsingar um kvikmyndina má finna á heimasíðu kvikmyndarinnar.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd